Ađalvalmynd

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Löt ađ blogga :/

08. apríl 2007 klukkan 17:49

Hæ, ég er ógeðslega löt að blogga og nenni ekki að blogga því að það er leiðinlegt. Kannski seinna að eg bloggi en ég ætla að taka mér pásu á þessari síðu.
Bæbæ ;)

Rannveig Árnadóttir

Er ađ kafna úr KVEFI :(

01. apríl 2007 klukkan 17:01
Sæl veri'ði.

Anna og Baldur komu í gær :D og það var rosa fínt að hitta þau en Pabbi og co gistu á egs. í nótt en hitti þau áðan og váá hvað það var gott að hitta þau og lika litla krúttið mitt hana Júlíu. En ég er búin að vera með kvef í nokkra daga og það vesnar alltaf og vesnar. Allt Söru að kenna því að hún smitaði mig og ég smitaði víst Rósu. :/ Allavegana þá er ég að fara að fermast fimmta apríl og ég er að deyja úr spennu en ég ætla að reyna að vera ekki með kvef á fermingardaginn. Gangi mér vel. En ég ætla að blogga um daginn í dag.

blackheart.gif

Vaknaði geðveigt snemma einhvað um hálf ellefu því að ég var að kafna úr kvefi :/ En ég vakti Bóel og hún var svo elskuleg að ná í glas handa mér svo að ég gat feingið mér að drekka, var geggjað þurr í hálsinum. Síðan fórum við að horfa á Dead or Alive og það var ágætis-mynd. Eftir það fórum við smá í tölvuna og svo ákvað ég að fara heim í sturtu og svoleiðis. Þannig að ég lagði að stað heim og fór í sturtu og klæddu mig og fór framm og þá var Baldur og Anna þar og ég spjallaði aðeins við þau og síðan fórum við úti sjoppu og fengum okkur ís, síðan fórum við að rúnta og síðan á eskifjörð að hitta ömmu og afa og þau gáfu mér nýjar græjur sem að ég fékk í fermingar gjöf :D Geggjað flottar. En svo fórum við heim og þau skutluðu mér beint heim því að ég ætlaði að hitta pabba, önnu láru og Júlíu sætu. En ég er búin að hitta þau og þau eru reyndar farin og ég fór bara í tölvuna og fór að blogga :D


blackheart.gif

Kommenta Takk :D
rannveig árnadóttir -
Rannveig Árnadóttir

Skíđadagar :D

30. mars 2007 klukkan 19:03
HALLÓ !!

-Þá er komið að því að blogga um skíðadagana. En þannig er nú það að á miðvikudeginum og fimmtudeginum voru alveg yndislegir dagar í skólanum því að við fórum uppí Oddskarð og það var mikið fjör. 

Á miðvikudeginum þá komum við í skólan og vorum að læra í ensku og stærfræði í fyrstu tveimur tímunum, síðan fórum við í rúturnar og fórum að leggja af stað. Ég fór strax með krökkunum í stóru því að ég þoli ekki að fara í litlu maður er svona hálftíma að fara upp liftuna eða einhvað :S En jáá það var rosa gaman hjá mér allvegana, fór eigmlega mest yfir göngin. En kl. 2 þá fór Bóel og ég fór að kveðja hana síðan hélt ég áfram að renna mér en síðan fór ég kl. 4 og fór heim.
Á fimmtudeginum þá vorum við í myndmennt í fyrstu tveimur tímunum síðan fórum við í rútunar og í Oddskarð (L) En já ég fór í stóru og var í henni eigimlega alllan tíman en síðan fórum við ; Ég, Frikki, Sæmi, Alla, Hjalti, Siggi Kári og Margeir ; og fórum þarna fyrir ofan gaungin eru klettar og við fórum þangað og síðan löbbuðum við uppá fjallin og það var GEÐVEIGT bratt ég hélt að ég myndi detta niður en við fórum við hátt að það var hægt að sjá Nesk. og það var einhvað hús þarna sem var með kaujum og allt síðan var komið að því að fara niður og það var rosa erfitt að koma sér í brettið því að við löbbuðum smá niður en Margeir hélt undir brettin hjá flestum svo að við mundum ekki missa þau en síðan rendum við okkur niður og það var GEÐVEIGT GAMAN !! mmmm, elska bara að hugsa um það því að maður fór svo hratt og alles. En síðan var komið að því að fara heim um 4 leitið.

Svona voru þessir æðislegu dagar, hlakka bara til að fara á næsta ári (L)

-En núna er páskafrí og maður þarf bara að vera duglegur að fara þarna uppeftir ;D En svo er maður að fara að fermast 5. apríl. og btw ÉG elska BRETTIÐ mitt !!!!

Rannveig Árnadóttir kveður með bestukveðju. Kommenta takk :P

Rannveig Árnadóttir

Ný tölva og rúm :)

28. mars 2007 klukkan 00:00
Halló sætu!

Þá er bara að blogga og þetta er fyrsta bloggið sem að ég blogga í þessari tölvu. En eins og kannski einhver sem að las bloggið hérna fyrir neðan þá var ég að tala um ferminga gjafirnar frá Mömmu og pabba og co. En þannig er nú það að það  átt bara eftir að setja inn netið og einhvað fl. í tölvuna sem að mamma og co. gáfu mér og það var gert í dag. En það er svoldið síðan að ég fékk rúmið og það er besta rúm sem að ég hef sofið í ! Mmm. Eins og mamma segir þá er ég dekruð. En mér finnst það samt ekki en ég á eigimlega allt sem að mér vantar ; gott rúm, fartölvu, iPod og frábæra vinkonu eins og Bóel. Líka þessa frábæra fjöldkildu sem að ég á. En nenni samt ekki að vera að tala um þetta. En á morgun þá erum við skólinn að fara í Oddskarð á morgun og mér hlakkar alveg eins til. Síðan förum við örugglega líka á fimmtudaginn. En í morgun þá vaknaði og klæddi mig og gerði mig til í skólan síðan fór ég í skólan og gerði það venjulega í honum nema að kl. hálf 11 þá kom Jenný að sækja mig og við fórum uppi egs. til besta vinar míns hans tannlæknisins. Síðan fórum við aftur niðreftir og ég fór heim og fékk mér að eta og síðan ætlaði ég aftur upp í skóla en þá var íslenskan alveg að vera búin þannig að ég nennti ekki að fara uppeftir. Ég sendi Bóel svona 10.0000 sms og reyndi að hringja í hana en hún svaraði ekki þannig að ég hringdi i hana Jóhönnu og hún svaraði ekki en hún hringdi þó til baka og ég spurði hana hvort að Bóel væri með henni en Bóel var uppí seturstofu. Þannig að ég fór þangað og þar var Bóel, Alma og Aníta og við sátum þarna og vorum að skoða myndböndin í símanum hans Jóhanns. Því að hann gleimdi honum þegar að hann fór í íþróttir, það var mikið hlegið af þessum myndböndum. Eigimlega bara myndbönd af Alexi og Sigurði Óla. En síðan var komið að íþróttum og það var fjörugur tími. Síðan fór ég heim og ætlaði að fara í sturtu en þá var einhvað að vatninu og það var geðveigt kalt. Þannig að ég tók mig til og fór til Bóelar og hún var svo mikið æði að hún leifði mér að fara í sturtu. En eftir það fórum við að horfa á Jackass 2 síðan á Beverly Hills 90210 og síðan fórum við uppí íþróttahús að ná í töskurnar okkar. Síðan fór ég heim og fór að horfa á sjónvarpið, síðan kom Nonni heim og við fórum að gera þetta við tölvuna. Síðan fór ég í tölvuna og fór að setja inn MSNIÐ og síðan var bara komin matur ;D En eftir mat kom Bóel og síðan kom Frikki og við fórum út í sjoppi. Síðan fór ég og Bóel heim til mín að horfa á into the blue, sem er btw besta mynd aldarinnar og erum búnar að vera í tölvunni. En Bóel ætlar að gista hjá mér þessi elska. Þannig að, Svona var dagurinn minn og hérna er ég og Bóelrut. En nenni ekki að blogga meira sætu ;)

Bæ :D
Kommenta Takk.


Jackass 2 (L)


Into the blue (L)
Rannveig Árnadóttir

Hausverkur :/ | Afmćli <:o)

26. mars 2007 klukkan 16:05

Blessuð og sæl.

Um helgina gerði ég voða lítið, var uppi bíói á laugadagskvöldið og fór í bíó í gær.
En ég fór ekki að sofa fyrr en kl. hálf 3 í nótt því að ég var að hjálpa mömmu. En ég vaknaði í morgun með hausverk sem að ég var búin að vera með síðan í gær dag og ég fór samt í skólan og tók tvær verkjatöflur í sitt hvoru laginu. En ég endaðist bara í fjórum fyrstu tímunum og var heima sofandi og sleppti því að fara í fimleika útaf hausnum. En þetta var minn skemmtilegi dagur eða þannig.

En á laugardaginn kemur Pabbi, Anna Lára, Júlía, Anna og Baldur. En ég er að fara að fermast á fimmtudaginn 5.apríl og mér hlakkar rosa mikið til. Er að deyja úr spenningi, ég er búin að fá fermingargjöfina frá pabba og co og mömmu og co. En ég fékk rúm frá pabba og co sem er btw. ótrúlega gott að sofa í og ég fékk tölvu frá mömmu og co sem er í hleðslu. Ég get farið að nota hana á morgun :D En í dag á Sara afmæli og stelpan er 20 ára <:o)

Hún á afmæli í dag,
Hún á afmæli í dag,
Hún á afmæli hún Sara,
Hún á afmli í dag.

Mynd af Söru ;

TinyPic image

Fjúdfjú. og til hamingju með það.

En hef ekki meira að segja þannig að Kommentið ;*

Bæ ;D

Rannveig Árnadóttir

Hellúúúú.

23. mars 2007 klukkan 18:35
Hellúúúú..

uu, í gær var árshátið og það var ágætt á henni og þetta gekk vel hjá okkur :D mjög glöð með það. En ég lék ekki mikið ég sagði ekki neitt og átti bara fyrst að vera að tala við Bóel og Selmu og síðan var bátaatriðið og ég var að setja bátana á sinn stað og raða stólunum. Síðan eftir það atriði þá tók ég allt saman og setti það baksviðs síðan var dansatriðið og maður dansaði. Eftir árshátiðina fór ég heim og fór í tölvuna síðan fór ég bara einhvað að horfa á vidjó og sofnaði við það.
Ég vaknaði í morgun og fór í skólan. Í fyrstu þremur tímunum vorum við í myndmennt og vorum einhvað að lita og horfa á Dumb and Dumberer mjög kósí síðan fórum við í íslensku og vorum að hlusta á tónlist og dansa því að Glúmur var seinn og síðan kom hann og las einhvað pínu úr Gauragangi síðan fór Glúmur einhvað að tala við Þórodd og þannig að vð kveiktum á tónlistinni og héldum áfram að dansa, síðan eftir hátegi þá átti að vera enska og stærfræði en fyrst vorum við einhvað að tala saman um næstu viku í 20 mín síðan fórum við niður í tölvustofu og fórum á leikjasíður t.d. leikjanet.
Síðan eftir skóla þá fór ég heim og fór að horfa á vídjó síðan hringdi ég í Bóel og við ætluðum að hittast en vorum í einhverju letistuði þannig að við nenntum ekki út, síðan kom Friðrik til mín og við horfðum á myndina sem að ég var byrjuð að horfa á síðan sofnaði ég aðeins yfir Skólahreysti, vaknaði og við horfðum á B. Hills 90210 og síðan sofnaði ég aftur. En Friðrik vakti mig því að hann þurfti að fara heim og ég fór í tölvuna.
Þannig var þessi æðisslegi dagur hjá mér. En svo þarf maður bara að vera duglegur að blogga eins og þið sjáið :D Ekki satt ? En kommenta, Takk (L)

Bæjó ;D

TinyPic image
Rannveig Árnadóttir

20. Mars

20. mars 2007 klukkan 18:46
Hæhæ.

Þá er bara að blogga.
En dagurinn í dag er búin að vera voða einfaldur. Byrjaði á því að vakna eins og allir aðrir síðan að gera mig til í skólan, síðan bara skóli. Það var skemmtilegt í skólanum í allan dag. Því að það er ársátíðavika (sem sagt ekki neitt að læra). Fyrir utan að ég fékk blóðnasir í ávaxtanestinu. Hrækti blóði og vesen. Síðan fékk í hausverk og íllt í maganum. Annas var þetta fínn dagur og jáá síðan var ég alltaf að meiða mig eins og í hátegininu þá fór ég heim með Bóel og ég var að
snúa mér einhvað og ég dundraði með hausinn í horn á skáp. Það var ekki þægilegt skal ég segja ykkur. Síðan eftir skóla þá fór Bóel með mér heim, en hún fór eigimlega strax aftur heim til sín. En ég fór einhvað pínu í tölvuna síðan beint í rúmmið og ætlaði einhvað að leggja mig smá en ég svaf frá 2 - 6. en það var fínt. Enda er þetta GEÐVEIGT þægilegt rúm. (Var að fá rúm í gær). En síðan þegar að ég vaknaði þá var mamma að fara í búðina þannig að ég fór einhvað í tölvuna að lónerast.

Bæ ;*

Rannveig Árnadóttir

Ný síđa.

18. mars 2007 klukkan 17:54
Hæ !

uu, Þá er maður komin með nýja síðu bara til að breyta um. :)
En hérna kemur hvað ég gerði í gær og í dag ;

í gær þá vakna ég og lá uppi rúminu til einhvað um 6 leitið og þá fór ég í sturtu og síðan hringdi ég í Bóel og talaði aðeins við hana síðan kom hún og mamma hennar að sækja mig og við fórum niðrí krónu að versla fyrir kvöldið því að ég og bóel ætluðum að gista saman en jáá, síðan var mér skuttlað heim og ég fór einhvað í tölvuna síðan fór ég að borða síðan til Rósu í bíóið og við vorum einhvað að spjalla saman síðan kom Frikki og síðan Bóel, þegar kl. var orðin einhvað um 11 þá fór ég og Bóel heim til hennar að sækja dót, síðan fórum við heim til mín og vorum einhvað að tjilla þar í tölvunni síðan fórum við að horfa á vidjó og fórum að sofa einhvað um 3 hálf 4.

Í dag vöknuðum við kl. 1 við að það var bankað á dyrnar okkar, því að við áttum að fara í messu kl. 2. Þannig að við kveigtum á sjónvarpinu og feingum okkur morgunmat og spjölluðum aðeins saman. Síðan fórum við að klæða okkur og síðan kom mamma hennar Bóelar og sótti okkur og við fórum niðró kirkju. Gaman af því, en síðan var mér skuttlað heim og Bóel fór til frænku sinnar og ég er bara að bíða eftir henni því að hún er bara réttókomin. En í kvöld þá fer í uppi bíó til Rósu minnar og kannski Bóel ef að hún nennir.

En maður er samt búin að vera að reyna að halda sig inni í dag því að það er ekki gott veður, brjálaður vindur og snjór útum allt og læti. En Bóel mín er komin þannig að ég er hætt að blogga og kommenta fólk.

Bæ ;)
Rannveig-
Rannveig Árnadóttir

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Gagnasafn